Póstdreifing leggur mikla áherslu á að starfa á umhverfisvænan hátt enda teljum við það hluta af samfélagslegri ábyrgð okkar að huga vel að samspili manna og náttúru.
Póstdreifing hefur markað sér eftirfarandi umhverfisstefnu sem hagsmunaaðilum ber að fylgja og vera meðvitaðir um.
- Við hvetjum starfsfólk okkar til að halda útprentun í lágmarki og leitumst við að nota sem mest rafræn skjöl.
- Við virðum óskir íbúa sem afþakka fríblöð eða fjólpóst á lúgum sínum og teljum kerfisbundið þær lúgur sem afþakka þau.
Þannig stemmum við stigu við ofdreifingu á dreifingarefni. - Við flokkum pappírsafganga við allar starfsstöðvar, hvort sem það eru dagblöð, tímarit eða skrifstofupappír.
- Við flokkum plast, dósir og aðra hluti sem koma að framleiðslu.
- Við höfum innleitt nýtt dreifingarfyrirkomulag í fjölbýlishúsum sem er með þeim hætti að um leið og ný blöð eru sett í Fréttablaðskassa eru afgangsblöð tekin til baka. Afgangsblöðunum er síðan komið í endurvinnslu.
Með þessum hætti stillum við framboð og eftirspurn blaðsins af og endurvinnum þau blöð sem eru ekki lesin og ofdreifingu þannig hætt. - Við höfum í samvinnu við 365, útgefanda Fréttablaðsins gefið „Blaðberann“ sem er geymslutaska fyrir blöð og auglýsingabæklinga. Þannig auðveldum við heimilum að halda utan um og endurvinna pappírinn sem fellur til á heimilum.
- Við notum eingöngu viðurkennd og umhverfisvæn hreingerningsefni til ræstinga.
- Við tökum þátt í verkefnum til að stemma stigu við gróðureyðingu á landinu. Í verkefnunum er notaður endurunnin dagblaðapappír sem meðal annars kemur frá Póstdreifingu
